Það er mér sannur heiður að hafa tekið við formennsku í Hinu íslenska náttúrufræðifélagi, félagi sem hefur verið hornsteinn í sögu íslenskra náttúruvísinda allt frá stofnun árið 1889. Í 136 ár hefur félagið miðlað þekkingu um íslenska náttúru og nú er komið að okkur að efla þetta mikilvæga hlutverk með nýrri sýn, skýrari áherslum og markvissari tengingu við samtímann. Hlutverk félagsins hefur alla tíð verið skýrt: Að efla íslenska náttúrufræði og auka skilning almennings á náttúrunni. Það er ekki aðeins fræðilegt verkefni heldur samfélagslegt ábyrgðarhlutverk, því þekking er forsenda verndar og lykill að því að við tökum upplýstar ákvarðanir um framtíðina.
Það eru forréttindi að starfa við náttúruvísindi. Náttúruvísindin hafa kennt mér að meta fegurð og flókið samspil lífsins, allt frá örsmáum lífverum til stærstu vistkerfa jarðar. Í starfi mínu sem sjávarlíffræðingur síðustu tvo áratugina hef ég séð hve viðkvæmt og dýrmætt þetta jafnvægi er. Framundan er þó mikilvægt verkefni: Að hvetja fleiri til náms í náttúruvísindum. Því áskoranir framtíðarinnar eru margar og sjálfbær samfélagsuppbygging krefst djúps skilnings á náttúru og vistkerfum. Í stafrænum heimi þar sem samkeppni um athygli er mikil þurfum við jafnframt að finna nýjar og skapandi leiðir til að ná til ungs fólks og kveikja áhuga þess á náttúrunni og vísindunum.
Ísland er lifandi rannsóknarstofa þar sem jarðhræringar, eldvirkni og loftslagsbreytingar minna á að náttúran er síbreytileg og óaðskiljanlegur hluti lífs okkar. Eldgosin á Reykjanesskaga, umræða um sjálfbæra orkunýtingu og brýnar áskoranir í náttúruvernd undirstrika mikilvægi vísindalegrar þekkingar og upplýstrar umræðu. Þótt tegundafjöldi á Íslandi sé lítill er sérstaða vistkerfa landsins mikil og krefst vandaðrar verndar og ábyrgrar nýtingar.
HÍN hyggst bregðast við þessum áskorunum með öflugri fræðslu, auknum sýnileika og tengslum við atvinnulífið og ferðaþjónustuna. Má fyrst nefna samstarf okkar við Útivist, sem hefur gefið af sér fjölda skemmtilegra og fræðandi gönguferða. Í þessum ferðum leiða félagsmenn HÍN gönguna og miðla dýrmætri þekkingu sinni á vettvangi. Þar gefst ferðalöngunum því tækifæri til að kynnast náttúrufyrirbærum landsins af eigin raun. Jafnframt hyggst félagið efla fræðslu í skólum og styrkja miðlun á samfélagsmiðlunum með fjölbreyttu efni og ná til breiðari hóps en áður.
Mikilvægur hluti af starfsemi félagsins er útgáfa Náttúrufræðingsins í samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands. Tímaritið er einstakt á Íslandi, eina ritrýnda tímaritið sem fjallar um náttúrufræði á íslensku, og er vettvangur allra náttúrufræðigreinanna. Það gegnir lykilhlutverki við að varðveita þekkingu, miðla henni og efla. Með því að gera efnið enn aðgengilegra og höfða einnig til ungs fólks getum við tryggt að tímaritið haldi áfram að vera leiðarljós í íslensku fræðasamfélagi.
Að lokum er vert að minnast á hið góða samstarf okkar við Náttúruminjasafn Íslands. Með tilkomu Náttúruhússins í Nesi fær safnið loksins aðstöðu sem hæfir hlutverki þess sem höfuðsafn þjóðarinnar í náttúrufræðum. Sýningin þeirra um líffræðilega fjölbreytni hafsins verður einstök fræðslu–og menningarviðbót og á eftir að efla skilning almennings á mikilvægi hafsins fyrir líf okkar allra.
Við stöndum á tímamótum. Ef okkur á að takast að vernda náttúruna og tryggja sjálfbæra framtíð þurfum við að sameinast um að efla þekkingu og kveikja áhuga næstu kynslóða. Ég hvet ykkur, kæru félagsmenn, til að kynna starf HÍN fyrir öðrum, vekja áhuga á Náttúrufræðingnum, senda inn greinar um rannsóknir ykkar og hvetja fleiri til að skrá sig í félagið. Brýnt verkefni framundan hjá stjórn HÍN er að fjölga félagsmönnum, því virk þátttaka okkar er lykill að öflugu og lifandi félagi. Við erum sterkust þegar við stöndum saman.
Ég hlakka til að taka þátt í þessari vegferð með ykkur.
Lísa Anne Libungan
formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags