Jón Hallsteinn Hallsson (f. 1976) lauk BS-prófi í sameindalíffræði
frá Háskóla Íslands vorið 1999 og doktorsprófi
í heilbrigðisvísindum frá sama skóla árið 2006.
Leiðbeinendur hans voru þeir Dr. Eiríkur Steingrímsson,
prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands og Dr.
Heinz Arnheiter, vísindamaður við National Institutes
of Health í Bandaríkjum Norður-Ameríku. Rannsóknir
Jóns í doktorsnáminu miðuðu að því að varpa ljósi á mikilvægi
eftirbreytni umritunarþáttarins Mitf í þroskun litfrumna.
Jón hefur frá árinu 2005 sinnt rannsóknum og
kennslu í erfðafræði við Landbúnaðarháskóla Íslands,
þar sem hann fékk framgang í stöðu prófessors árið 2019.
Jafnframt gegnir Jón stöðu aðjúnkts við Læknadeild
Háskóla Íslands þar sem hann kennir lífupplýsingafræði.
Jón hefur birt ritrýndar greinar um augnþroskun
í ávaxtaflugum, litaerfðir músa, stofnerfðafræði íslenskra
búfjárstofna, sjúkdómsvaldandi sveppi og stjórn
blómgunar í byggi.