Hlutverk ritstjórnar er að velja efni til birtingar í Náttúrufræðingnum og tryggja að kröfum um gæði og framsetningu efnisins sé fylgt. Allt efni sem berst til ritstjórnar er lesið yfir af a.m.k. tveimur óháðum aðilum. Þeir geta gert athugasemdir og ábendingar um úrbætur sem höfundar eru beðnir að taka afstöðu til og lagfæra eftir þörfum áður en efnið fæst að endingu samþykkt til birtingar. Í ritstjórn situr fjölbreyttur hópur sjálfboðaliða sem valinn er af stjórn Hins íslenska náttúrufræðifélags.
RITSTJÓRN NÁTTÚRUFRÆÐINGSINS
Sveinn Kári Valdimarsson, líffræðingur – formaður ritstjórnar
Gróa Valgerður Ingimundardóttir, grasafræðingur
Hlynur Óskarsson, vistfræðingur
Ragnhildur Guðmundsdóttir, líffræðingur
Ríkey Júlíusdóttir, jarðfræðingur
Sindri Gíslason, sjávarlíffræðingur
Tómas Grétar Gunnarsson, dýravistfræðingur
Þóroddur F. Þóroddsson, jarðfræðingur
RITSTJÓRI NÁTTÚRUFRÆÐINGSINS
Margrét Rósa Jochumsdóttir, þróunar- og sagnfræðingur ([email protected])