Náttúruverndarsamtök Austurlands 50 ára

Náttúruverndarsamtök Austurlands 50 ára

 

Sú sem hér skrifar vann að því áhugaverða verkefni fyrr á árinu að fara í gegnum sögu Náttúruverndarsamtaka Austurlands (NAUST). Tilefnið var það að samtökin eiga 50 ára afmæli á þessu ári. Hluti afrakstursins birtist í Glettingi – tímariti um austfirsk málefni, 2. tbl. 2020. Til liðs við mig fékk ég Guðmund Inga Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra, Andrés Skúlason formann NAUST, Hjörleif Guttormsson fyrrverandi alþingismann og ráðherra, Ástu Þorleifsdóttur, Rósu Halldórsdóttur og Höllu Eiríksdóttur fyrrverandi formenn NAUST og Helga Hallgrímsson náttúrufræðing og rithöfund. Þau skrifuðu greinar í afmælisblað NAUST.

 

Náttúruverndarsamtök Austurlands eru fyrir löngu orðin þekkt í sögu íslenskrar náttúruverndar. Þau hafa í hálfa öld staðið vaktina um náttúru og umhverfismál á Austurlandi og minnt á þýðingu hvors tveggja í verki, ræðu og riti. Hvatamaður að stofnun samtakanna 1970 og fyrsti formaður þeirra var Hjörleifur Guttormsson. Hann gegndi formennskunni í áratug og hefur stutt samtökin og tekið þátt í starfi þeirra æ síðan. Starfssvæði NAUST er víðlent, er á heimasíðu samtakanna nú sagt vera á milli Skeiðarár og Langaness.

 

Starfsemi NAUST einkenndist oft á tíðum af fjölsóttum aðalfundum, fjölbreyttu málefna- og nefndarstarfi, þátttöku á náttúruverndarþingum, í Náttúruverndarráði og útgáfu náttúruminjaskrár. Samtökin lögðu fram fjölda tillagna um friðlýsingu svæða og einstakra náttúruminja. Einnig lögðu þau áherslu á friðun landssvæða í grennd við þéttbýli til útivistar og náttúruskoðunar. Vörður á þeirri leið voru auðvitað fyrsti fólkvangur á Íslandi, Fólkvangur Neskaupstaðar og Álfaborgin á Borgarfirði eystri. Helsta afrek NAUST í baráttunni fyrir friðun náttúrudjásna á Austurlandi á þessum tíma var svo að Lónsöræfi voru friðlýst árið 1977. Nýjustu fréttir úr áralangri baráttu NAUST fyrir stofnun friðlanda á Austurlandi eru sérlega gleðilegar, því nú hefur Umhverfisstofnun lýst yfir fyrirhugaðri stofnun friðlands á Gerpissvæðinu og á Út-Héraði, þar sem náttúruperlan Stórurð er meðal einstakra djásna.

 

Spor NAUST í sögu náttúruverndar hér á landi liggja víða. Það kom mér á óvart hve virk samtökin hafa verið í málefnum líðandi stundar á sviði umhverfismála og náttúruverndar. Það er óhætt að nota í því sambandi orðalagið að hafa puttann á púlsinum. Samtökin voru stofnuð á tímum þegar umhverfismál voru að komast í sviðsljósið á alþjóðlegum vettvangi, enda árin í kringum 1970 sá tími þegar boðskapur umhverfis- og náttúruverndar fór að ná hljómgrunni. Það kom ekki til af góðu. Hinn margumtalaði iðnvæddi hagvöxtur sem umfram allt skyldi hafa að leiðarljósi fór að flekkast af ókostum þeirrar stefnu. Olíukreppan um 1970 sýndi að auðlindir jarðar eru ekki óþrjótandi, og þau varnaðarorð urðu háværari að mannkyn væri að spilla ekki aðeins umhverfi annarra lífvera heldur ekki síður sínu eigin, með mengun og úrgangi af öllum toga, ásamt því að vera að ganga gengdarlaust á búsvæði villtra plantna og dýrategunda.

 

Náttúruverndarsamtök Austurlands tóku hina alþjóðlegu umhverfisverndarstefnu inn í sína stefnuskrá og fræðslustarf, ekki síst með því að horfa með þeim gleraugum til umhverfismála á sínu starfssvæði. Útgerðir og olíufélög voru hvött til að huga að umhverfismálum í uppbyggingu sinni og starfssemi. Það gengi ekki lengur að olía og grútur fengju að fara í sjóinn eins og ekkert væri sjálfsagðara og öll mengun af fiskvinnslu eða olíukyndingu óhindrað upp í gegnum strompinn. Veiðarfæradrasl þyrfti að hirða um svo ekki spillti náttúru til lands og sjávar. Sveitarfélög voru hvött til að bæta úr sorphirðu og umgengni með hag íbúanna og umhverfisvernd að leiðarljósi. Bændur voru hvattir til að bæta umgengni á jörðum sínum, fjarlægja rusl og drasl, sinna landgræðslu og skógrækt, forðast ofbeit og hafa sjálfbærni að leiðarljósi í öllum atriðum til að búnast betur, samhliða því að ganga ekki á auðlindir landsins. NAUST fagnaði áformum um skógrækt á Austurlandi þegar þau komu fram en með þeim varnaðarorðum að við skipulag skógræktar þyrfti að byggja á rannsóknum, og á gerð og þörfum vistkerfa á þeim svæðum sem hugsuð væru til skógræktar. Samtökin hafa einnig boðað mikilvægi rannsókna áður en farið í stórfellda náttúrunýtingu, líkt og virkjanir og fiskeldi í sjó.

 

Þetta síðastnefnda hefur einkennt starf NAUST frá upphafi, það er að segja áherslan á að rannsóknir séu undanfari og forsenda fyrir heimild til allra þeirra umsvifa mannsins í náttúru Austurlands sem valda miklum eða óafturkræfum breytingum. Það varð ekki hvað síst hlutskipti NAUST að þurfa að ítreka þetta atriði í umræðu um fyrirhugaðar virkjunarframkvæmdir á Austurlandi á árunum í kringum 2000. Það kom mér hins vegar ekki á óvart við skoðun á sögu NAUST að mesti átakatíminn í starfi samtakanna var á tímum deilnanna um virkjun á hálendinu norðan Vatnajökuls. Sterk andstaða var við þau áform, ekki síst vegna þess hve mikil breyting yrði á landslagi og vistkerfi svæðisins ef af þeim yrði. Baráttan gegn þessum áformum hófst með mótmælum gegn virkjun Jökulsár í Fljótsdal með lóni á Eyjabökkum, sem sökkva átti þeim öllum, og síðan gegn Kárahnjúkavirkjun eftir að niðurstaðan varð að virkja Jökulsá á Dal. Eyjabökkum var hlíft en mikið land fór undir Hálslón og önnur lón Kárahnjúkavirkjunar sem knúin er með vatnsafli bæði frá Jökulsá á Dal og Jökulsá í Fljótsdal.

https://natturufraedingurinn.is/wp-content/uploads/2021/06/Adalfundur-NAUST-1972-0492x.jpg|https://natturufraedingurinn.is/wp-content/uploads/2021/06/Adalfundur-NAUST-2000-Snaefellsskali-2000-skodunarferd-0455-scaled.jpg|https://natturufraedingurinn.is/wp-content/uploads/2021/06/forsida75.png

Höfundur

  • Margrét Rósa Jochumsdóttir er ritstjóri prent- og vefútgáfu Náttúrufræðingsins.

Hið íslenska nátturufræðifélag

Stofnað 1889

www.hin.is

[email protected]

Ritstjóri: Margrét Rósa Jochumsdóttir

[email protected]

Aðsetur: Skrifstofa NMSÍ, 

Suðurlandsbraut 24