Nýtt og glæsilegt hefti Náttúrufræðingsins er á leiðinni og mun það berast lesendum fyrir jól. Í heftinu er meðal annars fjallað um búsvæði íslenskra vaðfugla, komur farfugla til landsins, lífshætti þorskungviðis og risaeðlur. Þá er að finna grein um ævi og störf jarðfræðingsins Tómasar Tryggvasonar, minningarorð um grasafræðinginn Hörð Kristinsson og umfjöllun um bókina Öld gensins.

Heftinu verður dreift til þeirra félagsmanna Hins íslenska náttúrufræðifélags sem eru í skilum með félagsgjöld ársins 2026. Þau sem eiga eftir að greiða árgjaldið eru hvött til að gera það eigi síðar en 22. nóvember til að tryggja sér heimsendingu heftisins fyrir jól.

Félagsmenn sem greiða eftir þann tíma geta sótt eintak í Náttúruhúsið í Urriðaholti, Urriðaholtsstræti 6 í Garðabæ, á auglýstum opnunartíma.

Hið íslenska náttúrufræðifélag þakkar félagsmönnum stuðninginn við útgáfu Náttúrufræðingsins, sem er sérstaklega mikilvægur á tímum þröngs fjárhags.

Höfundur

  • Margrét Rósa Jochumsdóttir

    Margrét Rósa Jochumsdóttir er ritstýra prent- og vefútgáfu Náttúrufræðingsins. Hún er með MA í ritstjórn og útgáfu og MA í þróunarfræðum, BA í sagn- og landafræði.

    Ritstýra

Hið íslenska náttúrufræðifélag

Stofnað 1889

Urriðaholtsstræti 6-8

210 Garðabær

www.hin.is

[email protected]